Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 14:41 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 14:41 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 14:41 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 14:41 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 14:41 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 14:41 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Byggðaráð Blönduósbæjar hélt fund í gær þar sem eitt mál var á dagskrá, skipun nýrra stjórnarmanna í stjórn Byggðasamlags um brunavarnir í Austur-Húnavatnssýslu. Sveitarstjórn Húnavatnshrepps hafði á fundi sínum 22. janúar síðastliðinn bókað að stjórn Brunavarna A-Hún. væri ekki rétt kjörin samkvæmt samþykktum og að nauðsynlegt væri að breyta þeim. Bókunin var tilkomin vegna umræðna um fundargerða Byggðasamlags um brunarvarnir í A-Hún. frá 2. janúar þar sem samþykkt var að kaupa nýtt húsnæði fyrir starfsemina, með fyrirvara um samþykki sveitarstjórna Húnavatnshrepps og Blönduóssbæjar. Sveitarstjórn Húnavatnshrepps ákvað á fundi sínum 22. janúar að fresta afgreiðslu málsins.
Byggðaráð Blönduóssbæjar hefur því skipað þau Guðmund Hauk Jakobsson, formann byggðaráðs og oddvita L-listans í stjórn í stað Hjálmars Björns Guðmundssonar og Önnu Margreti Sigurðardóttur, sveitarstjórnarfulltrúa og oddvita Ó-listans í stað Magnúsar Vals Ómarssonar.
Þá segir orðrétt í fundargerð byggðaráðs:
„Þessar breytingar munu taka gildi strax eftir að þær hafa verið staðfestar á næsta fundi sveitarstjórnar Blönduósbæjar, sem er samkvæmt fundardagskrá 11. febrúar 2020. Byggðaráð Blönduósbæjar vill þakka Hjálmari Birni og Magnúsi Val, kærlega fyrir mikið og óeigingjarnt starf við það að efla og byggja upp Brunavarnir í Austur-Húnavatnssýslu á undanförnum árum. Þá telur byggðaráð Blönduósbæjar ekki tilefni til þess að gera breytingar á samþykktum Byggðasamlags um Brunavarnir, en er reiðubúið í viðræður um hvernig megi efla starf brunavarna á svæðinu enn frekar“.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |