Tilkynningar | 29. janúar 2020 - kl. 16:34
Textílmiðstöð Íslands auglýsir eftir markaðs- og viðburðarstjórnanda Prjónagleðinnar 2020.
Verkefni markaðs- og viðburðarstjóra:
- markaðsetur Prjónagleðina hérlendis sem erlendis,
- skipuleggur viðburði í tenglsum við hátíðina í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki á Norðurlandi vestra,
- vinnur að Prjónagleðinni sem haldin er árlega á Blönduósi, að þessu sinni 12.-14. júní 2020,
- tekur þátt í helginni og undirbýr næstu hátíð að ári,
- tekur þátt í markaðsetningu á textílverkefnum Textílmiðstöðvarinnar.
Umsækjandi þarf að hafa menntun/sérþekkingu á sviði ferðamála, viðburða og markaðsetningar, einnig reynslu af markaðsetningu og viðburðastjórnun. Þekking á svæðinu er kostur. Starfstöð verður í Kvennaskólanum á Blönduósi.
Æskilegt er að umsækjandi búi á Norðurlandi vestra á meðan á verkefninu stendur.
Um er að ræða fullt starf í 7 mánuði.
Nánari upplýsingar gefur Jóhanna E. Pálmadóttir, netfang johanna@textilmidstod.is
Með umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferlisskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknir sendist inn á textilmidstod@textilmidstod.is fyrir 10. febrúar 2020.
Upplýsingar um Textílmiðstöð Íslands er að finna á vefnum www.textilmidstod.is