Fréttir | 30. janúar 2020 - kl. 11:42
Afmæliskaffi á Hvammstanga í dag

Í tilefni af 100 ára afmæli sjúkrahúss Hvammstanga býður Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga í afmæliskaffi í dag milli klukkan 14 og 17 í húsnæði sjúkrahússins að Spítalastíg 1. Halda átti viðburðinn 12. desember síðastliðin en frestaðist vegna óveðurs. Árið 1919 var tekin í notkun fyrsta byggingin sem var sérstaklega reist fyrir heilbrigðisþjónustu á svæðinu, læknisbústaður sem stendur við Spítalastíg 1. Áður hafði héraðslæknir sinnt sjúklingum á heimili sínu.

Flutt verður lítil dagskrá:

  • Guðmundur Haukur Sigurðsson stiklar á stóru yfir sögu sjúkrahúss Hvammstanga.
  • Tónlistaratriði

Frammi mun liggja baukur þar sem gestum og gangandi gefst kostur á að leggja í púkk og styrkja félagsstarf sjúkrahússins.

Kvennabandið hefur veg og vanda af kaffiveitingum. Allir eru velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga