Tilkynningar | 31. janúar 2020 - kl. 10:23
Til félagsmanna í Félagi eldri borgara í Húnaþingi

Auglýst er eftir þátttöku í ferð suður í Borgarfjörð og um Snæfellsnes dagana 28.-30. ágúst 2020. Gist verður í tvær nætur  á Langaholti á Snæfellsnesi.

 Leiðsögumaður um Snæfellsnes verður Dagbjört Dúna Rúnarsdóttir, en hún er formaður "Sagnaseiðs" á Snæfellsnesi.

Tveggja manna herbergi í tvær nætur (morgun- og kvöldverðir innifalldir) kr.30.423 á mann.

Eins manns herbergi kr. 39.846.

Félagið tekur þátt í ferðakostnaði að hluta. Nánari tilhögun og greiðsla staðfestingargjalds verður auglýst síðar. Hægt er að skrá sig fyrir 12.febrúar nk. hjá Sigrúnu í síma 864 0538 og hjá Kolbrúnu í síma 690 3124.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga