Mynd: ssnv.is
Mynd: ssnv.is
Fréttir | 06. febrúar 2020 - kl. 11:42
Fjölmargar tilnefningar bárust um framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra

Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra bars 31 tilnefning um 20 framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra árið 2019. Viðurkenningar verða veittar fyrir verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar annars vegar og á sviði menningar hins vegar. Í síðasta mánuði var auglýst eftir tilnefningum og rann frestur út 2. febrúar síðastliðinn.

Stjórn samtakanna hefur samþykkt hvaða framúrskarandi verkefni fá viðurkenningu og verða þau kynnt á úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra í Félagsheimilinu á Hvammstanga 13. febrúar næstkomandi klukkan 17.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga