Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:20 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:20 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:20 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:20 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:20 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:20 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Í síðasta mánuði var fyrsti fyrirlesturinn í fyrirlestraröð Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga haldinn í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga. Knattspyrnukonurnar og systurnar Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur héldu fyrirlestur sem fjallaði um andlegan styrk og mikilvægi fjölbreytts mataræðis. Mæting var þokkaleg eða um 30-40 manns. Á vef USVH er fjallað um fyrirlesturinn.
„Elísa sem er matvælafræðingur og í námi í íþrótta næringarfræði fór vel yfir næringu og hversu mikilvægt það er að hafa jafnvægi í inntöku á kolvetnum, fitu og próteinum í staðinn fyrir að taka eitthvað eitt alveg út. Hún lagði ríka áherslu á heilbrigt samband við sykur en um leið forðast vörur sem innihalda viðbætt efni eins og orkudrykki og stangir. Hún nefndi einnig ágæti þess að setja sér heilbrigð markmið í tengslum við mat þegar matarræðið er skoðað, taka stutt en markvís skref í átt að heilbrigði og gefast ekki upp þó dottið sé af sporinu, heldur halda ótrauð áfram.
Margrét Lára, fyrrum landsliðs fyrirliði kvenna og nú klínískur sálfræðingur ræddi um andlegan styrk og hvernig sjálfstraust, áskorun, skuldbinding og stjórn spila þar stórann þátt. Hún tók dæmi af ferli þeirra systra tengdum meiðslum og nefndi hversu mikilvægur stuðningur annarra er til að byggja upp sjálfstraust, bæði almennt og í erfiðum aðstæðum, þegar takast þarf á við stórar áskoranir í lífinu. Þannig væri auðveldara að takast á við þær skuldbindingar sem við þurfum oft að taka, vega og meta það sem skiptir máli, til að hafa stjórn á þeim og því sem kann að koma uppá á meðan. Það er margt sem komið getur uppá á meðan í ferlinu og eins og Lennon orðaði svo vel, “life is what happens when we are busy making other plans”. Margrét nefndi að lokum að það væri mikilvægt að eigna sjálfum sér þann árangur sem að næst hverju sinni, þó stuðningur annarra sé mikilvægur, því þannig styrkist einstaklingurinn sjálfur og hans trú á sjálfum sér.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |