Tilkynningar | 11. febrúar 2020 - kl. 11:38
Áminning um skráningu fyrir 12. febrúar
Til félagsmanna í Félagi eldri borgara í Húnaþingi.

Auglýst er eftir þátttöku í  ferð um Borgarfjörð (stóra) og Snæfellsnes dagana 28.-30. ágúst 2020.

Gist verður í tvær nætur á Langaholti  á Snæfellsnesi.

Leiðsögumaður um Snæfellsnes verður Dagbjört Dúna Rúnarsdóttir sem er formaður „Sagnaseiðs“ á Snæfellsnesi.

Gisting í tvær nætur og máltíðir:

Tveggja manna herbergi í tvær nætur ( morgun-og kvöldverður innifalinn)  kr. 30.423 á mann. Eins manns herbergi  kr. 39.846.

Félagið tekur þátt í ferðakostnaði að hluta. Nánari tilhögun og greiðsla staðfestingargjalds verður auglýst síðar. Hægt er að skrá sig fyrir 12.febrúar nk. hjá Sigrúnu í síma 8640538  og hjá Kolbrúnu í síma 690 3124.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga