Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:07 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:07 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:07 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:07 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:07 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:07 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Allt skólahald í Húnavatnssýslum fellur niður á morgun, föstudaginn 14. febrúar vegna slæmrar veðurspár. Íþróttahúsið og sundlaugar verða einnig lokaðar. Vegagerðin hefur birt yfirlit yfir þá vegi sem eru á óvissustigi vegna veðursins sem er á leiðinni. Á Norðurlandi vestra má búast að veginum um Holtavörðuheiði verði lokað frá klukkan 04:00 í fyrramálið. Búast má við að veginum um Vatnsskarð verði lokað frá klukkan 04:00 í fyrramálið og að lokunin standi til 07:00 15. febrúar.
Ríkislögreglustjóri hefur lýsir yfir óvissustigi almannavarna fyrir allt landið vegna austan aftakaveðurs á morgun. Ákvörðunin er tekin í samráði við alla lögreglustjóra landsins og í samræmi við veðurspá Veðurstofu Íslands, sem spáir aftakaveðri með appelsínugulum veðurviðvörunum um allt land.
Óvissustigi er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitthvað geti gerst af náttúru- eða mannavöldum, sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar er ógnað. Samráð á milli almannavarna og þeirra stofnana sem málið varðar er aukið.
Sérlega djúp lægð gengur yfir landið og mun hún fyrst hafa áhrif á sunnanverðu landinu aðfaranótt föstudags, en síðan um allt land er líða fer á morguninn og fram eftir degi. Búast má við víðtækum samgöngutruflunum á landinu og ekkert ferðaveður er á meðan viðvörunin er í gildi.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |