Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 05:03 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 05:03 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 05:03 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 05:03 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 05:03 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 05:03 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Eins og flestir lesendur Húnahornsins vita hefur gagnaversfyrirtækið Etix Everywhere Borealis staðið í umfangsmikilli uppbyggingu á síðustu misserum og lauk félagið framkvæmdum á síðasta ári við nýtt gagnaver á Blönduósi.
Í samtali við Morgunblaðið segir Björn Brynjúlfsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins að samhliða uppbyggingunni hafi félagið jafnframt lokið við um tveggja milljarða króna fjármögnun vegna hennar. Þessi fjármögnunin ku vera liður í áframhaldandi vexti félagsins á Íslandi og hafi að mestu leyti farið í gegnum erlenda fjárfesta.
Í Morgunblaðinu stendur orðrétt: „Björn segir að undirbúningur að næsta áfanga á Blönduósi sé nú þegar hafinn og fyrsta fasa í þeirri uppbyggingu sé nú að ljúka. Þar verði lögð áhersla á gagnageymslu og ofurtölvurekstur. Hann segir að bæjarfélagið sé ákjósanlegur staður fyrir gagnaver. Svæðið búi við örugga afhendingu orku, jarðfræðileg skilyrði séu góð og hættan á umhverfisvá mjög lítil.
Í kynningarmyndbandi fyrir gagnaverið má sjá að það tók aðeins fjóra mánuði að reisa húsnæðið frá því að fyrsta skóflustunga var tekin og þar til það var fullreist og er það m.a. búið fullkomnu kælikerfi. Þá kemur einnig fram í myndbandinu að í gagnaverinu séu staðsettir tuttugu og fimm þúsund miðlarar. Hér má sjá myndbandið https://www.etixeverywhere.com/iceland-hpc-blockchain-data-centers-colocation/.
Björn segir jafnframt í samtali sínu við Morgunblaðið að Etix Everywhere Borealis hafi á síðasta ári orðið fyrsti stórnotandinn sem tengdist flutningskerfi Landsnets á tveimur stöðum og hafi einnig gert orkukaupasamninga við Landsvirkjun, Orku náttúrunnar og HS Orku.
Vantage Data Centers keypti Etix Everywhere nýlega en Vantage er leiðandi fyrirtæki í gagnaverslausnum fyrir vel þekkt stór alþjóðleg tölvufyrirtæki, skýjaþjónustuaðila og alþjóðleg stórfyrirtæki.
Morgunblaðið greinir einnig frá því að Vantage áformi í framhaldinu að fjárfesta fyrir um tvo milljarða Bandaríkjadala í verkefnum í Evrópu.
Sjá nánar á mbl.is.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |