Fréttir | 28. febrúar 2020 - kl. 12:18
Vefráðstefna um skrifstofusetur

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra stóðu í gær fyrir vefráðstefnunni Er vinnustaður bara hugarástand en hún var hluti af norðurslóðaverkefninu Digi2Market sem eflir dreifðari byggðir með nýtingu stafrænna lausna. Markmið SSNV með ráðstefnunni var að vekja athygli einstaklinga, fyrirtækja, sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila á tækifærum skrifstofusetra, að því er segir á vef samtakanna.

Meðal aðgerða í gildandi byggðaáætlun er gert ráð fyrir að 10% allra auglýstra starfa í ráðuneytum og stofnunum þeirra verði án staðsetningar árið 2024 þannig að búseta hafi ekki áhrif við val á starfsfólki. Víðsvegar í Reykjavík og í einstaka byggðarlögum á landsbyggðinni eru starfrækt svokölluð skrifstofusetur þar sem fyrirtæki og einyrkjar leigja sér skrifstofuaðstöðu. Hugtakið er þó mun algengara erlendis en það er hér á Íslandi. Á Akranesi er skrifstofusetur rekið af einstaklingsframtaki þó með stuðningi frá landshlutasamtökum. Í Vestmannaeyjum er Þekkingarsetrið rekið eftir svipaðri forskrift en sá rekstur er tryggður með framlögum á fjárlögum. Þá hafa ráðuneyti og stofnanir á vegum ríkisins að einhverju leyti byrjað að auglýsa störf án staðsetningar. Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV, kom inn á í inngangi sínum á ráðstefnunni að  „betur má ef duga skal“. Ekki sé nóg að fyrirtæki og stofnanir séu opin fyrir flutningi á störfum út á land, samfélögin verði að vera tilbúin til að taka á móti þessu breytta landslagi.

Erindi ráðstefnunnar gáfu innsýn inn í viðhorf rekstraraðila, yfirmanns starfsmanns sem vinnur fjarvinnu og starfsmanns sem vinnur fjarvinnu.

Hægt er að nálgast upptöku af vefráðstefnunni á youtube síðu samtakanna.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga