Fréttir | 25. mars 2020 - kl. 12:23
Afgreiðslum lögreglu á Norðurlandi vestra lokað

Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur lokað tímabundið afgreiðslum sínum og er það liður í auknum smitvörnum vegna Covid-19 faraldursins. Ef ná þarf sambandi við skrifstofu lögreglunnar á Norðurlandi vestra er hægt að hafa samband í síma 444 0700 á milli klukkan 9-15 alla virka daga eða í gegnum netfangið nordurland.vestra@logreglan.is. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook.

Þar kemur einnig fram að í samræmi við lokun Þjóðskrár verði ekki tekið við skráningu heimilisfanga erlendra aðila og er vísað á vefsíðu Þjóðskrár varðandi frekari afgreiðslu þeirra mála.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga