Skjáskot af Youtube.
Skjáskot af Youtube.
Fréttir | 26. mars 2020 - kl. 11:40
Hugmyndaríkir íbúar í Húnaþingi vestra

Íbúar í Húnaþingi vestra sem eru í úrvinnslusóttkví leita margra leiða til að skemmta sér og öðrum. Á samfélagsmiðlum má finna skemmtilegt myndband sem nokkrir tónelskir félagar, sem koma oft saman til að spila og syngja, fundu leið með hjálp tækninnar til að halda því áfram, þrátt fyrir að vera ekki allir á sama staðnum.

Hér má sjá og hlusta á myndbandi en í því er lagið Ég lifi í draumi spilað í nýrri útgáfu sem nefnist Ég lífi í sóttkví.

Auður Þórhallsdóttir, myndmenntakennari í Grunnskóla Húnaþings vestra teiknaði líka skemmtilega mynd fyrir börn og fullorðna, sem hægt er að prenta út og lita. 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga