Fréttir | 26. mars 2020 - kl. 11:55
Aðeins fjölgaði um eitt staðfest Covid-19 smit í Húnaþingi vestra í gær. Alls hafa verið tekin 74 sýni og þar af hafa 17 verið jákvæð. Fleiri sýni verða tekin í dag. Fyrirspurnum í gegnum vefsíðu sveitarfélagsins varðandi Covid-19 fer fækkandi með hverju deginum en þær eru nú samtals 43. Flestir fá svör sín á vefsíðunni þar sem algengum spurningum vegna úrvinnslusóttkvíar er svarað. Sértækum spurningum er svarað sérstaklega af aðgerðastjórn, að því er fram kemur á vef Húnaþings vestra.