Fréttir | 26. mars 2020 - kl. 14:59
Óskað eftir fólki í bakvarðasveit HSN

Í heimsfaraldrinum sem nú geisar getur komið upp sú staða að starfsemi viðkvæmra eininga á heilbrigðisstofnunum raskist með mögulegu þjónusturofi viðkvæmra hópa. Til að koma í veg fyrir það leitar Heilbrigðisstofnun Norðurlands til almennings um aðstoð. Hún er fólgin í að einstaklingar sem geta og vilja, fylla út skráningarform á vef stofnunarinnar þar sem fram kemur hvaða störfum viðkomandi getur sinnt. Ef upp kemur sú staða að auka þurfi við mannskap verður haft samband.

Óskað er eftir fólki á skrá sem getur sinnt störfum í eldhúsi, þvottahúsi, ræstingu, aðhlynningu, læknum, hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, sjúkraflutningamönnum og öðrum sem vilja vera til taks ef á þarf að halda.

Hægt er að skrá sig hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga