Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 16:26 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 16:26 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 16:26 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 16:26 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 16:26 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 16:26 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Þverárfjallsvegur um Refasveit og Skagastrandarvegur um Laxá eru á meðal verkefna sem falla undir fjárfestingarátak stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Á þessu ári verða 6,5 milljarðar króna settir í samgöngumál, 550 milljónir í uppbyggingu fjarskiptakerfa og 300 milljónir til byggðamála til að sporna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldursins. Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu nýverið um tímabundið fjárfestingarátak stjórnvalda þar sem þetta var staðfest. Öll fjárfestingaframlögin bætast við önnur framlög í þessum málaflokkum á fjárlögum.
Markmið átaksins er að ráðast í arðbærar fjárfestingar og um leið auka eftirspurn eftir vinnuafli og örva landsframleiðslu á tímum samdráttar. Um er að ræða fjölbreyttar nýframkvæmdir í samgönguinnviðum sem undirbúningur er vel á veg kominn og hægt að ráðast í strax en einnig viðhaldsverkefni. Verkefnin eru um land allt og taka til allra samgöngugreina, þ.e. vega, flugvalla og hafna. Stærstur hluti fjárfestingarinnar er í vegakerfinu, nýframkvæmdir, breikkun einbreiðra brúa og gerð hringtorga auk viðhalds vega. Tillögurnar eru í góðu samræmi við þær áherslur sem hafa komið fram í umfjöllun umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um samgönguáætlun.
Þegar í ár verður 1.860 milljónum króna varið í vegaframkvæmdir og hönnun þeirra. Þverárfjallsvegur um Refasveit og Skagastrandarvegur um Laxá eru þar má meðal eins og áður sagði. Þá verður gert átak í að fækka einbreiðum brúm og ráðist verður í hafnarframkvæmdir um land allt og fjárfest í sjóvörnum á ýmsum stöðum vegna tjóns í óveðrum.
Framkvæmdir á flugvöllum
Áformað er að hefja framkvæmdir á fjórum flugvöllum á landsbyggðinni og efla einnig viðhald á öðrum flugvöllum og lendingarstöðum. Flugvellirnir eru á Ísafirði, Egilsstöðum, Akureyri og Þórshöfn. Stækkun flugstöðvar á Akureyri, flughlað á Akureyri og akbraut á Egilsstaðaflugvelli eru stærstu verkefnin en einnig verður ráðist í framkvæmdir á Ísafjarðarflugvelli og Þórshafnarflugvelli. Framkvæmdir munu hefjast við stækkun flugstöðvar á Akureyri á þessu ári svo hægt verði að afgreiða farþega í innanlands- og millilandaflugi samtímis. Þá verður flughlað einnig stækkað á Akureyrarflugvelli. Á Egilsstaðaflugvelli verður ráðist í framkvæmdir við nýja akbraut til að styrkja hlutverk flugvallarins sem varaflugvallar.
Blönduósflugvöllur er ekki nefndur sem sérstakt verkefni eins og fram kom í frétt Húnahornsins í gær. Samkvæmt heimildum Húnahornsins standa vonir þó til að hluti af fjármagni til framkvæmda á flugvöllum verði nýttur til að endurnýja ljósabúnað á Blönduósflugvelli.
Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |