Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 03:16 0 0°C
Laxárdalsh. 03:16 0 0°C
Vatnsskarð 03:16 0 0°C
Þverárfjall 03:16 0 0°C
Kjalarnes 03:16 0 0°C
Hafnarfjall 03:16 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Ljósm: Róbert Daníel Jónsson
Ljósm: Róbert Daníel Jónsson
Tilkynningar | 02. apríl 2020 - kl. 09:38
Prjónagleðinni frestað
Tilkynning frá Textílmiðstöð Íslands

Ákveðið hefur verið að fresta Prjónagleðinni 2020 þar til 11.-13. júní 2021, vegna Covid-19 faraldursins.

Til að viðhalda prjóna- og sköpunargleðinni höldum við ótrauð áfram með prjónasamkeppnina, en í ár verður keppnin á netinu og almenningur fær tækifæri til að kjósa sína uppáhaldshönnun. Til að viðhalda sköpunar- og prjónagleðinni á meðan á faraldrinum stendur, munum við halda samkeppnina þrátt fyrir að ekki verði af sjálfri Prjónagleðinni. Samkeppnin fer þannig fram að þátttakendur senda okkur myndir og upplýsingar um höfuðfatið sem við síðan birtum á Facebook-síðu Prjónagleðinnar. Gestir síðunnar kjósa sitt uppáhalds höfuðfat í framhaldin og þeir vinna sem fá flest stig. Ekki verða birt nöfn hönnuða fyrr en við tilkynningu á vinningshöfum!

Við höldum líka áfram að kortleggja Textílslóð Norðurlands vestra. Textílslóðin er ný af nálinni en henni er ætlað að styðja og kynna einstaklinga og fyrirtæki sem vinna með ull og annan textíl í landshlutanum.

„Það er okkur mikilvægt að kynna þá ríku arfleifð handverkskunnáttu og textílframleiðslu sem hér er að finna. Hér má finna sýningar, garnframleiðendur, ullarframleiðendur og afþreyingu sem tengist þessari arfleifð. Saga textíls er saga kvenna. Við viljum skapa sjáanlegt net um landshlutann sem sýnir þetta og sannar."

Þeir sem hafa áhuga á að vera með í Textílslóð er bent á að senda tölvupóst til greta@textilmidstod.is.

Þú getur fengið nýjustu fréttir af textílslóðinni, prjónagleði næsta árs, og prjónakeppninni á Facebook síðu hátíðarinnar: Prjónagleði – Iceland Knit Fest.

Reglur prjónakeppninnar: Forsendur/verklýsing:

  • Fullbúið höfuðfat og frágengið. Má vera hvort sem er á barn eða fullorðinn.
  • Ný hönnun/mynstur. Óheimilt að nota þegar útgefin prjónamynstur.
  • Höfuðfatið þarf að vera prjónað en þó mega kantar og skraut vera með annarri tækni.
  • Prjónaðar úr íslenskri ull sem unnin er á Íslandi.

Senda 3-4 myndir í skilaboð á Facebook síðu Prjónagleðinnar; Prjónagleði Icelandic Knit Fest eða á netfangið johanna@textilmidstod.is. Eiga þær að sýna allt höfuðfatið og nákvæmari útfærslur.

Með skilaboðunum þarf að koma fram nafn, heimilisfang og símanúmer. Þá skal fylgja lausleg uppskrift ásamt lýsingu á aðferð og upplýsingum um tegund Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin og horft til frumlegustu og bestu útfærslunnar. Eftirfarandi fyrirtæki ætla að leggja okkur lið og gefa glæsileg verðlaun. Þau eru; Ístex, Ísgel, Vilkó, Kidka.

Samkeppnin stendur yfir þar til 10. júní en tilkynning um verðlaunahafa verður birt laugardaginn 13. júní 2020 á Facebook síðu Prjónagleðinnar; Prjónagleði Icelandic Knit Fest.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið