Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 05:08 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 05:08 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 05:08 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 05:08 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 05:08 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 05:08 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Í baráttunni við kórónuveiruna er mikilvægt að allir virði fyrirmæli almannavarna sem hafa lagt mikla áherslu á að fólk haldi sig heima um páskana. Til að undirstrika skilaboðin hefur einvalalið tónlistafólks tekið sig saman, ásamt þríeykinu Ölmu, Víði og Þórólfi, og sent frá sér myndband við lagið Ferðumst innanhúss, sem er betur þekkt sem Góða ferð. Leifur Geir Hafsteinsson er höfundur nýja textans. Allir sem komu að laginu gáfu vinnu sína.
Myndbandið má sjá hér.
Texti lagsins er hér:
Ferðumst innanhúss
Þú veist það eru viðsjárverðir tímar
með landamæri lokuð víðast hvar
en sútum ekki örlög, heldur húkkum okkur far
í ferðalag og freistum gæfunnar
Góða ferð, góða ferð, góða ferð
þetta‘er tækifæri‘af allra bestu gerð
já tínum til vort trúss og ferðumst innanhúss
góða ferð, verum sæl með góða ferð
Í tveggja metra fjarlægð kæri vinur
og ekki fleiri‘en nítján á sama stað
í takmörkunum lífsins þá líst mér best á það
að bregða mér í ilmolíubað
Góða ferð, góða ferð, góða ferð
þetta‘er heima-spa af allra bestu gerð
ohh við elskum svona stúss, að dúllast innanhúss
góða ferð, verum sæl með góða ferð
Ef leiðigjörn er orðin blessuð stofan
og eldhúsið svo hversdagslegt og grátt
þá ævintýrin bíða, það toppar enda fátt
góða bílskúrsútilegu, yfir nátt
Góða ferð, góða ferð, góða ferð
þetta‘er útilega af allra bestu gerð
já tínum til vort trúss og kúrum innanhúss
góða ferð, verum sæl með góða ferð
Nú þurfa allir þétt að standa saman
og koma COVID-stríðinu á skrið
ef efla viljum lýðheilsu og finna sálarfrið
við hlýðum Víði og ferðumst heima við!
Góða ferð, góða ferð, góða ferð
þetta‘er upplifun af sérstökustu gerð
já, fáum úr því rúss, að ferðast innanhúss
góða ferð, verum sæl með góða innanhússferð
góða ferð, verum sæl með góða ferð
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |