Fréttir | 23. apríl 2020 - kl. 11:22
Stóri plokkdagurinn er á laugardaginn

Stóri plokkdagurinn verður haldinn næstkomandi laugardag, 25. apríl, á degi umhverfisins og munu þá plokkarar landsins taka sig saman og tína rusl af götum landsins, en þó með tveggja metra millibili. Með plokki er átt við að tína upp plast og annað rusl úr náttúrunni og koma því í endurvinnslu. Skipuleggjendur vonast til þess að sveitarfélög hvetji íbúa sína til þátttöku.

Félagsskapurinn Plokk á Íslandi blæs til Stóra plokkdagsins á laugardaginn kemur, á degi umhverfisins. Þetta er þriðja árið sem hópurinn skipuleggur þetta umhverfisátak undir sínum merkjum. Vegna samkomubanns og óvissutíma var hópurinn á báðum áttum hvort réttlætanlegt væri að boða til hátíðarinnar þetta árið en eftir samráð og leiðbeiningar frá Víði Reynissyni, yfirlögregluþjóni hjá embætti ríkislögreglustjóra, var ákveðið að láta slag standa.

Plokkað til stuðnings heilbrigðisstarfsfólki 
Í ár vilja plokkarar landsins beina plokktöngum sínum að heilbrigðisstofnunum landsins, sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum og dvalar- og hjúkrunarheimilum, og sýna þannig þakklæti sitt í verki, enda hefur starfsfólk og stjórnendur þessara heilbrigðisstofnanna verið undir miklu álagi svo vikum skiptir. Í tilkynningu segir að hugmyndin sé táknræn. Það sé ekki svo að í kringum heilbrigðisstofnanir landsins sé rusl að finna í meiri mæli en annars staðar „en með því að taka þátt í plokki í kringum heilbrigðisstofnanir getum við, fólkið í landinu, látið þakklæti okkar í ljós með þessum táknræna hætti.“

Vona að sveitarfélög hvetji íbúa til þátttöku
Skipuleggjendur vona að sem flest sveitarfélög hvetji íbúa sína til þátttöku. „Að plokka gefur fólki tækifæri til að sameina útiveru og hreyfingu sem og að sýna umhverfinu og samfélaginu kærleik í verki. Það er tilvalið í samkomubanni þar sem auðvelt er að virða tveggja metra regluna.  Að plokka fegrar umhverfi okkar og náttúru en víða er mikið af plasti og öðru rusli eftir stormasaman vetur.“

PLOKKTRIXIN Í BÓKINNI

1. Finna sér svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt.
2. Stofna viðburð eða tengja sig inn á stofnaðan viðburð.
3. Útvega sér ruslapoka, hanska og plokktöng.
4. Klæða sig eftir aðstæðum.
5. Virða samkomubannið og gæta að tveggja metra reglunni.
6. Koma afrakstrinum á viðeigandi stofnun.
7. Hringja eða senda tölvupóst á sveitarfélagið sitt og láta sækja ef magnið er mikið.
8. Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um stóra plokkdaginn á Facebook-hópnum Plokk á Íslandi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga