Fréttir | 23. apríl 2020 - kl. 11:51
Afurðahæstu sauðfjárbúin eru í Húnaþingi vestra

Sauðfjárbændur í Vestur-Húnavatnssýslu náðu mestum afurðum eftir sínar ær í fyrra en meðalbú á svæðinu skilaði 30,6 kíló á hverja á. Þetta kemur fram í niðurstöðum Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins úr afurðaskýrsluhaldi sauðfjárræktarinnar fyrir framleiðsluárið 2019. Bændablaðið fjallar um niðurstöðurnar en þar segir að útkoman sé góð í heildina og niðurstöðurnar keimlíkar árinu 2018. Fleiri bú nái mjög góðum árangri og fjölgaði búum á topplistanum.

Uppgjör fyrir framleiðsluárið 2019 byggir á 329.619 ám tveggja vetra og eldri og eru skýrsluhaldarar um 1.680 talsins. Flestar ær á skýrslum eru í Skagafirði, 30.012 talsins og næst kemur Austur-Húnavatnssýsla með 29.702 ær. Afurðir eru gerðar upp í 130 fjárræktarfélögum. Stærsta félagið er fjárræktarfélag Sveinsstaðahrepps í Austur-Húnavatnssýslu en í því félagi eru 42 skýrsluhaldarar og fullorðnar ær 12.206. Næststærsta félagið er sf. Tindur í Strandasýslu með 7.738 ær og 30 félaga.

Ef niðurstöður eru skoðaðar eftir sýslum þá eru það Vestur-Húnvetningar sem ná mestum afurðum eftir sínar ær. Þar skilaði meðalbúið 30,6 kg eftir hverja á. Í Bændablaðinu segir að á þessu svæði séu mörg bú sem nái miklum vænleika samhliða afar góðri frjósemi. Næst kemur Strandasýsla með 30,02 kg eftir hverja á. „Keppnin hefur gjarnan staðið milli þessara tveggja héraða um mestar afurðir og Strandamenn oftar en ekki staðið efstir yfir landið en gefa nú toppsætið eftir til nágranna sinna,“ segir í blaðinu.

Sjá nánari og ýtarlegri umfjöllun í Bændablaðinu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga