Frá Blönduósi
Frá Blönduósi
Fréttir | 24. apríl 2020 - kl. 14:09
Götur sópaðar á Blönduósi í næstu viku

Vorboðinn ljúfi, götusópurinn, verður á Blönduósi dagana 29.-30. apríl. Sópaðar verða götur í þéttbýlinu og er mikilvægt að ökutækjum sé ekki lagt á götur þannig að hægt sé að sópa meðfram öllum kantsteinum. Á vef Blönduósbæjar kemur fram að víða hafi íbúar tekið sig til og sópað af innkeyrslum og gangstéttum við húsin sín og hjálpað til við hreinsun bæjarins. Það sé til mikillar fyrirmyndar og hvatning til annarra að gera slíkt hið sama.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga