Fréttir | 28. apríl 2020 - kl. 09:22
Heimsóknir leyfðar á HSN á Blönduósi með ákveðnum takmörkunum frá og með 4. maí nk.
Tilkynning frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Heimsóknir verða leyfðar inn á Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi  frá og með 4. maí næstkomandi með ákveðnum takmörkunum.  Þó mikið hafi áunnist í baráttunni gegn COVID-19 erum við ekki komin í höfn og sýna þarf ítrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Einnig er nauðsynlegt að takmarka þann fjölda sem kemur inn í heimilið á hverjum tíma. Vonir eru bundnar við að heimsóknir verði rýmkaðar enn frekar í júní 2020.

Vinsamlega kynnið ykkur vel eftirfarandi heimsóknarreglur:

  1. Ekki panta heimsóknartíma og alls ekki koma í heimsókn ef:
    1. Þú ert í sóttkví
    2. Þú ert í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku
    3. Þú hefur verið í einangrun og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
    4. Þú ert með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
  2. Heimsóknartími er frá kl: 13:00-16:00 alla daga    
  3. Hafið samband í síma 455-4141/455-4142 og pantið heimsóknartíma. Heimild til heimsókna verður einu sinni í viku í eina klukkustund í senn sem veitt verður frá 4. maí. Einungis má einn aðstandandi koma. Ef vel gengur í baráttunni við veiruna, verður tíðni heimsókna aukin.
  4. Við hvetjum ykkur til að hlaða niður í símana ykkar smitrakningnarappi almannavarna Rakning C-19 fyrir 4. maí
  5. Hinkrið eftir starfsmanni við lyftu á heilsugæslu A inngang (deild 1) eða lyftu við B inngang (deild 2)  hann fylgir ykkur til íbúa. Munið að þvo og/eða spritta hendur áður en heimsókn hefst og að henni lokinni. Ekki koma við neitt í almannarýmum, farið beint inn til íbúa og beint út aftur.
  6. Athugið að heimsóknin er til ættingja þíns, staldrið ekki við til að ræða við aðra íbúa, ættingja eða starfsfólk.
  7. Almennt er ekki gert ráð fyrir að börn og ungmenni (yngri en 14 ára) komi í heimsókn. Börn (14-18 ára) geta komið í heimsókn ef þau eru nánasti aðstandandi og koma þá einsömul.
  8. Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa eins og hægt er.

ATHUGIÐ: Ef smit vegna COVID-19 aukast aftur, eða smit vegna annarra smitsjúkdóma, munu tilslakanir á heimsóknarbanni ganga til baka og reglur verða hertar á ný.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga