Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 14:38 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 14:38 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 14:38 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 14:38 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 14:38 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 14:38 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Ferðaþjónustufyrirtæki á Norðurlandi telja að þau muni komast í gegnum það ástand sem Covid-19 veirufaraldurinn hefur skapað og ætla að vera með opið hjá sér í sumar. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Markaðsstofa Norðurlands gerði í byrjun maí. Meirihluti þeirra er að nýta úrræði ríkisstjórnarinnar, þar af eru flest þeirra að nýta hlutabótaleiðina, að því er segir í tilkynningu.
Alls sögðu tæplega 39% að mjög líklega myndi fyrirtækið þeirra lifa Covid-19 ástandið af og tæp 38% segja það frekar líklegt. Þá var spurt um hvort fyrirtæki yrðu með opið hjá sér í sumar og ánægjulegt er að 91% þeirra sem svöruðu þessari spurningu svöruðu henni játandi. Þar af voru 60% sem verða með opið hjá sér allt árið og opnunin því ekki aðeins bundin við háönnina á komandi mánuðum.
Þegar spurt hvar um hvort fólk væri sammála þeirri fullyrðingu að íslenskir ferðamenn væru mikilvægir fyrir þeirra fyrirtæki, kom í ljós að meirihlutinn telur svo vera. Alls sögðu tæp 36% að þau væru mjög sammála þessari fullyrðingu og tæp 23% að þau væru frekar sammála.
Könnunin var netkönnun sem send var á póstlista Markaðsstofu Norðurlands og var í gangi frá 5.-11 maí. Það voru 172 sem svöruðu könnuninni.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |