Frá Skagaströnd. Ljósm: skagastrond.is
Frá Skagaströnd. Ljósm: skagastrond.is
Fréttir | 22. maí 2020 - kl. 14:47
Vinnuskóli Skagastrandar hefst 3. júní

Vinnuskóli Sveitarfélagsins Skagastrandar hefst þriðjudaginn 3. júní næstkomandi og lýkur föstudaginn 31. júlí. Hann er fyrir nemendur sem búsettir eru á Skagaströnd og hafa nýlokið 8., 9. og 10. bekk Höfðaskóla. Markmið skólans er að gefa unglingum kost á samspili vinnu, þjálfunar og fræðslu í sumarleyfi sínu. Skráning fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins eða í gegnum rafræna umsókn.

Rafræna umsókn má nálgast hér. Nánari upplýsingar um vinnuskólann má sjá á vef Skagastrandar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga