Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 09:20 0 0°C
Laxárdalsh. 09:20 0 0°C
Vatnsskarð 09:20 0 0°C
Þverárfjall 09:20 0 0°C
Kjalarnes 09:20 0 0°C
Hafnarfjall 09:20 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Úr Húnaþingi. Ljósm: Guðmundur St. Ragnarsson
Úr Húnaþingi. Ljósm: Guðmundur St. Ragnarsson
Fréttir | 25. maí 2020 - kl. 09:00
Fjöldamörk úr 50 í 200 manns og fleiri tilslakanir

auglýsing heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tekur gildi í dag, mánudaginn 25. maí. Þar með verður allt að 200 manns heimilt að koma saman í stað 50 nú, heimilt verður að opna líkamsræktarstöðvar með sömu takmörkunum og gilda um sund- og baðstaði og öllum veitingastöðum, þar með töldum krám og skemmtistöðum, og einnig spilasölum, verður heimilt að hafa opið til klukkan 23.00.

Hvatt er til þess að viðhalda tveggja metra nálægðarmörkum eftir því sem kostur er, eins og nánar er fjallað um í auglýsingunni. Auglýsingin er í fullu samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Ráðherra kynnti ákvörðun sína um breytingar á takmörkun á samkomum á fundi ríkisstjórnar í morgun, að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Með nýrri auglýsingu verður framkvæmd tveggja metra reglurnar breytt nokkuð. Horft er til þess að vernda þá sem eru viðkvæmir með því að skapa þeim sem það kjósa aðstæður til að viðhalda tveggja metra fjarlægðarreglu. Þannig verði til dæmis á veitingastöðum, í leikhúsum og bíósölum boðið upp á að minnsta kosti nokkur sæti sem geri þetta kleift.

Á líkamsræktarstöðvum verður, líkt og á á sund- og baðstöðum, takmörkun á fjölda gesta sem miðast við að þeir séu aldrei fleiri en nemur helmingi af leyfilegum hámarksfjölda samkvæmt starfsleyfi. Eins og fram kemur í auglýsingunni verða áfram gerðar sömu kröfur um sótthreinsun og þrif almenningsrýma og hingað til.

Frá upphafi COVID-19 faraldursins hér á landi hafa greinst smit hjá rúmlega 1.800 einstaklingum. Undanfarið hefur nýsmitum fækkað verulega og hafa aðeins fimm einstaklingar greinst það sem af er maímánuði. Í minnisblaði sóttvarnalæknis segir að þær tilslakanir sem gerðar voru á samkomutakmörkunum 4. maí síðastliðinn virðist ekki hafa leitt til fjölgunar sjúkdómstilfella.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið