Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 28. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 15:42 0 0°C
Laxárdalsh. 15:42 0 0°C
Vatnsskarð 15:42 0 0°C
Þverárfjall 15:42 0 0°C
Kjalarnes 15:42 0 0°C
Hafnarfjall 15:42 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
22. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024
Fréttir | 25. maí 2020 - kl. 10:11
SSNV skorar á ráðherra og ríkistjórn

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hefur sent Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra bókun þar sem fram koma áhyggjur af fjárhagsstöðu sveitarfélaga vegna áhrifa COVID-19. Skorað er á ráðherra að tryggja að ekki komi til skerðinga framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna versnandi afkomu ríkissjóðs. Sú aðgerð væri besta almenna aðgerðin til hjálpar sveitarfélögum í landinu.

Bókun stjórnar í heild sinni:

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra lýsir yfir miklum áhyggjum af áhrifum Covid-19 faraldursins á fjárhagsstöðu sveitarfélaganna á starfssvæði samtakanna og þeim áhrifum á framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem ástandið mun hafa vegna versnandi stöðu ríkissjóðs.

Ef litið er til nýlegrar greiningar Byggðastofnunar á áhrifum faraldursins  á sveitarfélög í landinu er ljóst að þau verða mikil. Lausafjárstaða og sjóðsstreymi sveitarfélaga mun breytast til hins verra. Tekjur munu dragast saman vegna breytts atvinnustigs með hruni ferðaþjónustunnar og afleiddra greina og þannig hafa áhrif á útsvarsstofn sveitarfélaga til lækkunar. Hafnargjöld munu víða dragast saman og gera má ráð fyrir auknum kostnaði við félagsaðstoð. Til viðbótar við framangreint eru mörg sveitarfélög að bregðast við ástandinu með ýmiskonar átaksverkefnum og flýta framkvæmdum með tilheyrandi auknum kostnaði. Allt þetta mun óhjákvæmilega leiða til aukinnar skuldsetningar sveitarfélaganna.

Í áðurnefndri greiningu Byggðastofnunar kemur jafnframt fram að verði 10% samdráttur í skatttekjum ríkisjóðs gætu tekjur Jöfnunarsjóðs dregist saman um 4-5 milljarða sem hefur veruleg áhrif á rekstur sveitarfélaga í landinu. Sú skerðing til viðbótar við tekjuskerðingu vegna þeirra þátta sem nefndir voru hér að framan verður verulegt högg fyrir sveitarfélögin í landinu og til langs tíma leiða til þess að einhver sveitarfélög munu eiga í erfiðleikum með að halda úti lögbundinni þjónustu.

Það er ljóst að áhrif ástandsins á sveitarfélögin munu verða mismikil. Án efa munu fjárhagserfiðleikar einhverra sveitarfélaga kalla á sértækar aðgerðir af hálfu ríkisins. Stjórn SSNV vill hins vegar benda á mikilvægi þess að gripið verði til almennra aðgerða vegna ástandsins sem klárlega hefur áhrif á öll sveitarfélögin í landinu. Að mati stjórnar SSNV er vænlegasta almenna aðgerðin að tryggja að ekki verði skerðing á framlögum úr Jöfnunarsjóði til sveitarfélaganna með því að veita viðbótarfjármagni til sjóðsins. Þannig verði tryggt að fyrirsjáanlegar sveiflur í tekjum sjóðsins vegna efnahagsástandsins muni ekki hafa áhrif á framlög til sveitarfélaganna.

Skorað er á ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og ríkisstjórnina alla að grípa til þessarar almennu aðgerðar til að styðja sveitarfélög í landinu öllu í að rækja sitt mikilvæga hlutverk í að komast yfir þær erfiðu aðstæður sem nú eru uppi. Skv. skýrslu OECD um svæðabundin áhrif Covid-19 faraldursins munu sveitarstjórnir leika lykilhlutverk í því endurreisnarstarfi sem mun þurfa að eiga sér stað á næstu misserum. Það er því gríðarlega mikilvægt að sveitarfélögin hafi til þess fjárhagslega burði og þar eru framlög Jöfnunarsjóðs mikilvægur þáttur. Þau framlög mega ekki skerðast eigi sveitarfélögin að geta rækt hlutverk sitt í endurreisninni og haldið úti nauðsynlegri þjónustu fyrir íbúa.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið