Tilkynningar | 29. maí 2020 - kl. 12:16
Fjáröflun vegna knattspyrnudeildar Hvatar
Tilkynning frá stjórn

Knattspyrnudeild Hvatar er að selja áskrift að Stöð 2 Sport Ísland fyrir aðeins 3990 kr. á mánuði sem fjáröflun fyrir deildina, í okkar hlut koma 6.470 kr. fyrir hverja selda áskrift svo til mikils er að vinna.

Hægt er að skrá sig á netinu hér: https://stod2.is/vinnumsaman, muna að velja HVÖT sem íþróttafélag, eða senda okkur tölvupóst á hvot@simnet.is með eftirfarandi upplýsingum: nafn, kennitala, netfang, sími, íþróttafélag (HVÖT). Við munum einnig ganga í hús í næstu viku og safna skráningum.

Athugið: Þó svo að þú sért nú þegar áskrifandi að Stöð2 Sport þá er samt hægt að styrkja Hvöt, eina sem þarf þá að gera er að haka í reitinn "Er áskrifandi að Stöð 2 Sport en hef áhuga á að styrkja mitt íþróttafélag með 6 mánaða bindingu".

Með von um góðar undirtektir - Áfram Hvöt

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga