Hólaneskirkja
Hólaneskirkja
Tilkynningar | 05. júní 2020 - kl. 22:12
Sjómannadagsmessa í Hólaneskirkju
Frá Skagastrandarprestakalli

Sjómannadagsmessa verður haldin Hólaneskirkju sunnudaginn 7. júní klukkan 11. Steindór Runiberg Haraldsson er ræðumaður dagsins. Hinn rómaði Sjómannadagskór Skagastrandar syngur við undirleik hljómsveitar hússins og Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista og kórstjóra. Séra Bryndís Valbjarnardóttir þjónar í messunni.

Að athöfn lokinni er lagður blómsveigur við minnisvarðann um drukknaða sjómenn frá Skagaströnd.

Gleðilega hátíð.  Til hamingju með daginn ykkar sjómenn.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga