Tilkynningar | 05. júní 2020 - kl. 22:46
HSN fær nýtt símanúmer
Tilkynning frá HSN

Í tilkynningu frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands segir að HSN á Blönduósi hafi fengið nýtt símanúmer. Númerið er 4324100. Þá hefur HSN á Skagaströnd fengið númerið 4324150.

Vaktlæknir utan dagvinnutíma hefur númerið 1700 en ef upp kemur neyðartilfelli skal hringja í númerið 112.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga