Kvennareið: Mynd Höskuldur B. Erlingsson
Kvennareið: Mynd Höskuldur B. Erlingsson
Tilkynningar | 15. júní 2020 - kl. 12:22
Árleg kvennareið í A-Hún.
Frá nefndinni

Hin árlega kvennareið í Austur-Húnavatnssýslu verður farin sunnudaginn 21. júní klukkan 15:00. Farið verður frá Sauðanesi og endað í reiðhöllinni á Blönduósi þar sem verður grillað og haft gaman. Eftir matinn verður happdrætti og eru fjölmargir góðir vinningar í boði. Þemað í ár verður „Sumar".

Skráningargjald er 3.000 kr. en skráning þarf að berast fyrir fimmtudaginn 18. júní. Hægt er að senda skráningu á fb síðu, á netfangið sonjasuska70@gmail.com eða hringja í Sonju í síma: 6167449 eða Unu í síma: 8947351.

Hlökkum til að sjá ykkur

Nefndin

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga