Helgi Sæmundur. Ljósm: ssnv.is
Helgi Sæmundur. Ljósm: ssnv.is
Fréttir | 23. júní 2020 - kl. 09:24
Stutt myndbönd af perlum Norðurlands vestra

Norðvestur eða Nordvestur eru Youtube, Facebook og Instagram síður með myndböndum af perlum Norðurlands vestra. Þau eru framleidd af Helga Sæmundi Guðmundssyni í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Helgi festir á filmu nokkra af hápunktum landshlutans og pakkar þeim snyrtilega inn með frumsaminni tónlist í stutt myndbönd.

Sjá Youtube síðuna hér og Facebook síðuna hér.

Verkefnið er hluti af átaksverkefni landshlutans vegna kórónuveirufarandursins.

Hér er myndband sem Helgi tók í Svartárdal í Austur-Húnavatnssýslu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga