Fréttir | 14. júlí 2020 - kl. 15:49
Blönduhlaup á Húnavöku

Hið árlega Blönduhlaup verður haldið á Húnavöku um helgina. Hlaupið fer fram laugardaginn 18. júlí og verður ræst klukkan 10:30 við útibú Arion banka að Húnabraut 5 á Blönduósi. Skráning fer fram í Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan 9:45 á hlaupadag en einnig er hægt að forskrá sig í hlaupið með því að senda tölvupóst á netfangið usah540@simnet.is.

Aldursflokkar:
2,5 km: 15 ára og yngri – 16 ára og eldri (Skemmtiskokk).
5,0 km: 15 ára og yngri – 16 til 34 ára – 35 ára og eldri.
10 km: 34 ára og yngri – 35 ára og eldri.

Þátttökugjald:
1.500 kr. fyrir 12 ára og yngri
2.500 kr. fyrir 13 ára og eldri

Verðlaun:
Viðurkenningarskjöl með skráðum tímum
Verðlaunapeningar fyrir fyrsta sæti í hverjum flokki

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga