Fréttir | 24. júlí 2020 - kl. 09:06
Stuð á Hvammstanga í kvöld

Stuðmenn, ein ástsælasta hljómsveit landsins, heldur tónleika í Félagsheimilinu á Hvammstanga í kvöld, á þriðja degi Elds í Húnaþingi. Húsið opnar klukkan 20 en tónleikarnir sjálfir hefjast hálftíma síðar og standa til 23. Aldurstakmark er 18 ár og Eldsbarinn verður á staðnum. Af öðrum viðburðum dagsins á hátíðinni má nefna að Ingó Veðurguð ætlar að halda uppi góðri stemningu í Kirkjuhvammi í kvöld og sjá til þess að allir syngi með.

Skoðaðu dagskrá Elds í Húnaþingi hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga