Fréttir | 24. júlí 2020 - kl. 11:14
Golfkennsla í Vatnahverfi

Laugardaginn 25. júlí býður Þórður Rafn Gissurarson golfkennari upp á golfkennslu fyrir byrjendur og lengra komna frá klukkan 8:00-15:00. Í boði eru einkatíma og hóptímar fyrir byrjendur og lengra komna. Skráning á golfkennslatrg@gmail.com  fyrir klukkan 20:00 föstudaginn 24. júlí.

Sunnudaginn 26. júlí frá klukkan 11:00-13:00 verður Þórður með kennslu fyrir byrjendur í golfi frá aldrinum 8-15 ára. Kennslan er í boði golfklúbbsins, foreldrum að kostnaðarlausu.

Klukkan 13:00-15:00 verður kennsla fyrir lengra komna á aldrinum 8-15 ára. Kennslan er í boði golfklúbbsins, foreldrum að kostnaðarlausu. Skráning á jgjon@mi.is fyrir klukkan 20:00 föstudaginn 24. júlí.

Ef þátttaka verður dræm fellur kennslan niður.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga