Fréttir | 25. júlí 2020 - kl. 10:26
Nýtt gagnvirkt vefsvæði fyrir ferðalagið

Markaðsstofur landshlutanna hafa ýtt úr vör samstarfsverkefni sem miðar að því að auðvelda og hvetja enn frekar til ferðalaga innanlands. Verkefnið er liður í að auka á dreifingu ferðamanna um landið sem og styðja við uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu í kjölfar heimsfaraldurs. Þetta er langstærsta þróunarverkefni sem markaðsstofurnar hafa tekið sér fyrir hendur. 

Verkefnið ber yfirskriftina Upplifðu og er sannkölluð stafræn bylting þegar kemur að skipulagningu ferðalaga um Ísland sem og upplýsingagátt um það sem í boði er. Allar sex markaðsstofur landshlutanna, Norðurlands, Vestfjarða, Vesturlands, Austurbrú, Reykjaness og Suðurlands standa að verkefninu.

Um er að ræða gagnvirkt vefsvæði, www.upplifdu.is þar sem notendum gefst kostur á að sníða ferðalagið nákvæmlega eftir sínu höfði og fá aðstoð við að sjá hvað er í boði á hverjum stað, fá nákvæma tímaáætlun milli áfangastaða og síðast en ekki síst, uppgötva nýja möguleika á myndrænan hátt.

Skoðaðu www.upplifdu.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga