Tilkynningar | 11. ágúst 2020 - kl. 09:38
USVH auglýsir eftir framkvæmdastjóra

Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga auglýsir eftir framkvæmdastjóra. Leitað er að drífandi einstaklingi til að annast daglegan rekstur sambandsins. Þar á meðal er samskipti við aðildarfélögin, skipulagning viðburða ásamt öðrum þeim verkefnum sem USVH stendur fyrir eða tekur þátt í. Starfshlutfallið er um 20%.

Hæfniskröfur:

Áhugi á hreyfingu og félagsstarfi
Færni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði í starfi
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Almenn tölvukunnátta
Geta unnið sveigjanlegan vinnutíma

Gert er ráð fyrir því að nýr framkvæmdastjóri geti hafið störf sem fyrst í ágúst.

Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á usvh@usvh.is.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Sigfússon varaformaður USVH í síma 891-6930.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga