Frá uppgreftri á Þingeyrum. Skjáskot af ruv.is
Frá uppgreftri á Þingeyrum. Skjáskot af ruv.is
Fréttir | 23. ágúst 2020 - kl. 08:53
Unnið að fornleifauppgreftri á Þingeyrum

Áfram er unnið að fornleifauppgreftri í rústum Þingeyraklausturs. Áætlað er að grafa í þrjár vikur í sumar en uppgröfturinn hófst 10. ágúst síðastliðinn. Eftir að hafa grafið í gegnum leifar yngri bygginga, ofan á sjálfum klausturrústunum, er hópurinn nú að nálgast klausturtímann. Bútur af bókaleðri, innsiglishringur og borði með ævafornu letri er meðal þess sem fundist hefur í fornleifarannsóknum í rústum klaustursins.

Sagt er frá þessu í sjónvarpsfréttum Ríkisútvarpsins í gær. Þar kom fram að rannsaka á þá miklu ritmenningu og bókagerð sem fram fór í klaustrinu. Á Þingeyrum var rekið klaustur í meira en fjórar aldir og þar voru rituð og gefin út mörg af merkustu handritum Íslendinga. Flateyjarbók þar á meðal.

Steinunn Kristjánsdóttir, prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands stýrir uppgreftrinum og segir hún að búið sé að rýna mjög mikið í þessi rit, hvað í þeim stendur, en það hafi ekki áður verið leita leifa eftir bókagerðina sjálfa. Hún segir ekki viðbúið að þarna finnist heillegar bækur eða handrit, frekar ummerki um bókagerðina, sútun skinna og þess háttar.

Þingeyraklaustur var gríðarstórt og Steinunn segir þau aðeins ná að grafa í litlum hluta rústanna í sumar. „Þannig að þetta gæti orðið áratuga verkefni ef það yrði haldið áfram stöðugt. En við erum að gera okkur vonir um að geta verið hérna í nokkur ár, fimm ár kannski,“ segir Steinunn í samtali við Ríkisútvarpið.

Fréttina má sjá á Rúv.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga