Fréttir | 24. ágúst 2020 - kl. 16:57
SSNV stendur fyrir ör-ráðstefnum

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra standa fyrir ör-ráðstefnum í streymi á komandi vetri. Um er að ræða ráðstefnur um málefni til að örva og styrkja rekstur. Lagt er upp með að ör-ráðstefnurnar verði ekki lengri en klukkutíma í senn, að því er segir á vef SSNV.

Fyrsta ör-ráðstefnan ber heitið „Verslun á netinu“. Hún verður haldin 17. september. Farið verður yfir hvað einkennir góða vefverslun, hluti sem ber að varast og hvað getur haft áhrif á sölu. Farið verður yfir reynslusögur af vefverslun, hvað hefur gefist vel og hvað ekki. Edda Blumenstein, eigandi og ráðgjafi beOmni, fer yfir hugmyndafræði Omni-channel og hvernig hún er mikilvæg í upplifun viðskiptavina.

Á annarri ör-ráðstefnunni sem fer fram 15. október er yfirskriftin „Ert þú með hugmynd?“. Haukur Guðjónsson verður m.a. með erindi um fyrstu skrefin í átt að því að koma hugmyndi í framkvæmd. Haukur býr yfir tveggja áratuga reynslu í frumkvöðlastarfi og hefur sjálfur stofnað sjö fyrirtæki í tveimur heimsálfum og þremur löndum. Hann hefur verið virkur þátttakandi í að byggja upp frumkvöðlaumhverfið á Íslandi og kenndi sitt fyrsta námskeið í stofnun fyrirtækja árið 2009 þegar hann hélt frítt námskeið í stofnun fyrirtækja til að hjálpa þeim sem höfðu farið illa út úr efnahagshruninu 2008.

Þriðja ör-ráðstefnan er „Hver er þín saga?“ og verður haldin 12. nóvember. Á henni verður farið yfir hvernig er hægt að nýta sögu fyrirtækja og/eða einstaklinga til að auka virði vöru/þjónustu og vekja áhuga á fyrirtæki. Jafnframt verður farið yfir hvernig nýta má söguna í markaðssetningu. Nánari upplýsingar um viðburðina má nálgast á Facebook síðu viðburðanna. 

Verslun á netinu, fimmtudaginn 17. september kl. 11:00

Ert þú með hugmynd?, fimmtudaginn 15. október kl. 11:00

Hver er þín saga?, fimmtudaginn 12. nóvember kl. 11:00

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga