Rækjur. Mynd: sjavarutvegssveitarfelog.is
Rækjur. Mynd: sjavarutvegssveitarfelog.is
Fréttir | 24. ágúst 2020 - kl. 17:17
Tveimur tonnum af rækju stolið á Hvammstanga

Lögreglan á Norðurlandi vestra rannsakar þjófnað á tveimur tonnum af rækjum sem stolið frá rækjuverksmiðjunni Meleyri á Hvammstanga um helgina. Sagt er frá þessu á vef Ríkisútvarpsins. Haft er eftir Baldvini Þór Bergþórssyni, verkefnisstjóra rækjuvinnslunnar að upp hafi komist um þjófnaðinn á laugardagsmorgun. Lás hafi verið brotinn á frystigámi og rækjurnar horfnar. Hann áætlar að virði rækjanna sé í kringum 5 til 6 milljónir.

Þjófarnir hafa þurft að vera ansi skipulagðir og vel á sig komnir enda eru rækjurnar pakkaðar í tíu kílóa kassa. Þetta voru því um 200 kassar sem þeir stálu og þurftu að ferja yfir í bíl. Baldvin Þór segir að það verði ekki auðvelt að koma rækjunum í verð.

Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra, staðfestir í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins að rækju-þjófnaðurinn sé til rannsóknar. Hann segir augljóst að þjófarnir hafi þurft sérstakt ökutæki til að flytja rækjurnar enda komist svona magn ekki fyrir í venjulegum fjölskyldubíl.

Verið sé að fara yfir myndefni úr eftirlitsmyndavélum, ekki bara frá hafnarsvæðinu. Hann bendir á að væntanlega þurfi þjófarnir að koma vörunni fyrir í frystigeymslu og biðlar til fólks um að hafa varann á sér ef því býðst að kaupa rækjur á vægu verði.

Sjá nánar á Rúv.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga