Fréttir | 25. ágúst 2020 - kl. 14:30
Kennarar kvíðnir vegna lélegra samgangna

Mikið hefur verið ritað og rætt um óboðlega vegi í Húnaþingi vestra, sérstaklega á Vatnsnesi og fáar úrbætur hafa verið gerðar. Kennarar í Grunnskóla Húnaþings vestra á Hvammstanga segjast nú kvíða því að hefja enn eitt skólaárið án þess að samgöngur í sveitarfélaginu hafi verið bættar. Um 150 nemendur eru í skólanum og býr tæplega helmingur þeirra í dreifbýli og þarf að ferðast um langan veg með skólabíl á hverjum degi.

Sumir nemendur þurfa að sitja í tvo klukkutíma á dag í skólabíl á misgóðum malarvegum. Ríkisútvarpið fjallar um málið í dag. Haft er eftir Guðrúnu Ósk Steinbjörnsdóttur, námsráðgjafa í skólanum að kennarar hafi lýst yfir áhyggjum út af hópi nemenda, hvernig þeir verði í stakk búnir til að takast á við námið þegar þeir koma á Hvammstanga, ef vegir verði í jafn slæmu ásigkomulagi eins og þeir verði oft á haustin.

Vegurinn um Vatnsnes er langverstur og íbúar hafa ítrekað kvartað yfir ástandi hans. Börn hafa komið bílveik og illa haldin í skólann eftir ferðir um veginn með skólabíl. Guðrún segir að foreldrar hafi rætt það að hætta að senda börnin í skólann við þessar aðstæður. „Aksturstími þeirra á dag lengdist um allt að 40 mínútur, vegna þess að vegirnir voru í það slæmu ásigkomulagi að það var hreinlega ekki hægt að keyra þá.“

Endurbætur á Vatnsnesvegi eru á þriðja tímabili samgönguáætlunar og hefjast samkvæmt því ekki fyrr en 2030. Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra, segir í samtali við Ríkisútvarpið það afar brýnt að færa veginn framar í áætluninni.

Sjá nánar frétt Ríkisútvarpsins hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga