Fréttir | 25. ágúst 2020 - kl. 14:36
Ristarhlið ekki fjarlægð nema tryggt sé að sauðfé komist ekki yfir varnarlínur

Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að ristarhlið á mörkum varnarhólfa gegn sauðfjársjúkdómum verða ekki fjarlægð nema tryggt sé að sauðfé komist ekki yfir varnarlínur. Vegagerðin setti sig í samband við Matvælastofnun vegna áforma um að fjarlægja tvö ristarhlið á þjóðvegi 1 í Húnaþingi og eitt ristarhlið við Héraðsvötn í Skagafirði. Ristarhliðin eru í slæmu ástandi og ógna umferðaröryggi að mati Vegagerðarinnar.

Í tilkynningunni segir að Matvælastofnun hafi upplýsti Vegagerðina um svar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um heimild til að fjarlægja ristarhliðin með fyrirvara um að ekki stafi ógn af því m.t.t. smitsjúkdóma í dýrum. Tilteknar varnarlínur eru milli riðu- og riðulausra svæða og ekki forsendur til að veita tilslakanir. Mistök í samskiptum urðu til þess að Vegagerðin taldi sig hafa heimild til að fjarlægja ristarhliðin.

Ristarhliðin þrjú eru enn á sínum stað og verða ekki fjarlægð nema smitvarnir séu tryggðar, segir í tilkynningunni. Tjón hefur hins vegar orðið á girðingu við ristarhliðið við Héraðsvötn með þeim afleiðingum að tveir línubrjótar komust í gegn. Starfsmenn Matvælastofnunar brugðust strax við og aflífuðu kindurnar tvær. Viðgerð á girðingunni er í forgangi.

Matvælastofnun, Vegagerðin og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið munu skoða hvernig standa eigi að vegaframkvæmdunum þannig að umferðaröryggi og dýraheilbrigði sé eins og best verður á kosið.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga