Fréttir | 07. september 2020 - kl. 09:06
Rýmri samkomutakmarkanir

Á miðnætti tóku nýjar og rýmri samkomutakmarkanir gildi. Nálægðarreglan fer úr tveimur metrum í einn metra og hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman fer úr 100 manns í 200. Hámarksfjöldi á sund- og baðstöðum og líkamsræktarstöðvum fer úr helmingi af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi í 75%.

Íþróttir, sviðslistir og önnur menningarstarfsemi getur farið fram þrátt fyrir 1 metra reglu, þ.e. snertingar eru þar heimilar. Um áhorfendur fer eftir almennum reglum um 1 metra og 200 manns í rými. Opnunartími vínveitingastaða verður áfram takmarkaður við til kl. 23.00.

Sjá nánar reglugerð heilbrigðisráðherra og minnisblað sóttvarnalæknis.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga