Tilkynningar | 08. september 2020 - kl. 09:02
Þjálfun í þreksal 60+

Mánudaginn 14. september hefst þjálfun í þreksal fyrir 60 ára og eldri. Er þetta námskeið hugsað fyrir byrjendur eða þá sem vilja læra betur á tækin og fá leiðsögn með rétta líkamsbeitingu. Námskeiðið mun standa í fimm vikur. Í boði verða þrír hópar og komast fimm einstaklingar í hvern hóp.

Tímarnir sem í boði eru:

Mánudagur kl 10:00 – 11:00
Mánudagur kl 11:00 – 12:00
Mánudagur kl 16:30 – 17:00

Blönduósbær styrkir námskeiðið en kostnaður fyrir hvern einstakling er 2.000 kr.

Þeir sem hafa áhuga vinsamlegast skrái sig með því að senda póst á steinamagg@gmail.com eða hringja í s: 869-4857.

Þjálfari er Steinunn Hulda Íþrótta- og heilsufræðingur

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga