Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 16:31 0 0°C
Laxárdalsh. 16:31 0 0°C
Vatnsskarð 16:31 0 0°C
Þverárfjall 16:31 0 0°C
Kjalarnes 16:31 0 0°C
Hafnarfjall 16:31 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 08. september 2020 - kl. 12:24
Leita að framúrskarandi ungum Íslendingum

JCI Ísland leitar að „Framúrskarandi ungum Íslending árið 2020“ á aldrinum 18-40 ára. Verðlaunin eru veitt einstaklingum sem eru að takast á við krefjandi og athyglisverð verkefni og ná góðum árangri. Markmið verðlaunanna eru að verðlaunahafar hljóti hvatningu til frekari dáða og vekja athygli á verkum þeirra.

Tilnefnt er í tíu mismunandi flokkum sem eru eftirfarandi:

  • Störf á sviði viðskipta, frumkvöðla og/eða hagfræði.
  • Störf á sviði stjórnmála, ríkismála og/eða lögfræði.
  • Leiðtogar/afrek á sviði menntamála.
  • Störf /afrek á sviði menningar.
  • Störf á sviði siðferðis og/eða umhverfismála.
  • Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda.
  • Störf á sviði mannúðar og/eða sjálfboðaliðamála.
  • Störf á sviði tækni og/eða vísinda.
  • Einstaklingssigrar og/eða afrek.
  • Störf /uppgötvanir á sviði læknisfræði.

Hægt er að senda tilnefningu á vef verkefnisins, www.framurskarandi.is.  

Verðlaunin eru hluti af alþjóðlegu verðlaununum "Ten Outstanding Young Persons awards" og eru veitt árlega af Junior Chamber International. Verðlaunin hafa verið veitt hérlendis óslitið frá árinu 2002 en á heimsvísu eiga þau sér sögu aftur til miðbiks síðustu aldar. Tveir íslendingar hafa fengið verðlaunin á heimsvísu, þau Kristín Rós Hákonardóttir íþróttakona og frumkvöðullinn Guðjón í Oz og þar bætast þau í hóp einstaklinga eins og John F. Kennedy, Elvis Presley og Jackie Chan.

Auk þeirra Kristínar og Guðjóns hafa fjölmargir framúrskarandi einstaklingar fengið verðlaunin hér heima, t.d. Ingileif Friðriksdóttir, Ævar Þór Benediktsson, Sævar Helgi Bragason, Vilborg Arna Gissurardóttir, Emilíana Torrini svo einhver séu nefnd, og nú síðast Pétur Halldórsson formaður Ungra Umhverfissinna.

Skilyrði fyrir tilnefningu er að viðkomandi einstaklingar hafi með sýnilegum hætti skarað fram úr, verið góðar fyrirmyndir og gefið af sér til samfélagsins. Séu þessi skilyrði uppfyllt komast þau í lokaúrtak sem dómnefnd sker svo úr um.

Úr tilnefningum er valinn topp tíu hópur af einstaklingum sem fær viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf á sínu sviði og úr þessum hóp fær einn einstaklingur verðlaun sem afhent eru af forseta Íslands, verndara verkefnisins. Verðlaunin verða veitt í október næstkomandi en opið er fyrir innsendingar á tilnefningum til 13. september.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið