Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 24. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 12:45 0 0°C
Laxárdalsh. 12:45 0 0°C
Vatnsskarð 12:45 0 0°C
Þverárfjall 12:45 0 0°C
Kjalarnes 12:45 0 0°C
Hafnarfjall 12:45 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Gangnamaður á Grímstunguheiði. Ljósm: Holger Páll Sæmundsson
Gangnamaður á Grímstunguheiði. Ljósm: Holger Páll Sæmundsson
Fréttir | 09. september 2020 - kl. 20:04
Nýr og ferskur Feykir kominn út

Feykir kom út í dag en í blaðinu má finna ýmislegt gagnlegt og gott frá Norðurlandi vestra, auk fastra liða eins og venjulega, afþreyingu í boði hússins í bland við skemmtilega umfjallanir og viðtöl. Í blaðinu er m.a. ferðasaga um leiðangur fámenns hóps í Húsgilsdrag þar sem minningarplatti um Helgu Sigurðardóttur, fylgikonu Jóns Arasonar, síðasta kaþólska biskups fyrir siðaskipti, var festur á stein.

Gamla hlaðan lifnar við, er fyrirsögn á viðtali við Magnús Frey Gíslason en hann ásamt fleirum ætla að blása lífi í gömlu hlöðuna sem stendur við mynni Sauðárgils og Litlakógar. Stefnt er á opnun kaffihúss þar á næsta ári.

Svala Runólfsdóttir, héraðsskjalavörður í Austur-Húnavatnssýslu, skrifar aðsenda grein um mikilvægi skjalavörslu en stefnt er á að halda námskeið í samvinnu skjalasafna á Norðurlandi vestra og Þjóðskjalasafni Íslands.

Hinn geysivinsæli þáttur um torskilin bæjarnöfn er þar einnig að finna og eru Skeggjastaðir í Miðfirði teknir til skoðunar. Leiddar eru líkur að því að upprunalega nafnið á jörðinni hafi verið Skeggvaldastaðir.

Fyrir skömmu fóru nokkrir galvaskir áhugamenn um sögu Helgu Sigurðardóttur, fylgikonu Jóns Arasonar, síðasta kaþólska biskups Íslands fyrir siðaskipti, með minningarplatta í Húsgil sem staðsett er á bak við Glóðafeyki í Blönduhlíð. Þar hafðist hún við sumarið 1551 í tjaldi í felum fyrir dönskum konungsmönnum sem árið áður höfðu líflátið Jón og tvo syni þeirra. Sagt er frá ferðinni í gamansömum tón og Sigurður Hansen tekinn tali.

Vicki O´Shea segir frá starfsemi listamiðstöðvarinnar Nes á Skagaströnd en þar heftur verið tekið á móti tæplega 1000 listamönnum á tólf árum.

Söngkonan unga og áður efnilega, nú frábæra, svarar spurningum í Tón-lystinni en eitt af topp 10 bestu mómentum lífs hennar var að hitta Ariönu Grande.

Sagt er frá skemmtilegu verkefni sem nokkrar stúlkur á Sauðárkróki unnu að í sumar, Stelpur – on the run, en þær hittust reglulega og hlupu góðgerðahlaup til styrktar Barnaspítala Hringsins.

Þéttur íþróttapakki er á sínum stað ásamt matgæðingunum Sunnu Gylfa og Davíð Þór og sem bjóða upp á andavefjur, Tagliatelle og franska súkkulaðiköku. Vísnaþáttur númer 767 er einnig að finna og geymir margar góðar vísur eins og þessa eftir Reyni Hjartarson:

Gott er að hafa gangnamenn slíka
sem grenjandi hríðin ei heftir.
Hundarnir týndust og hestarnir líka
og helmingur fjárins varð eftir.

Þá má ekki gleyma að telja upp aflafréttir, afþreyinguna, fréttir og spurningu vikunnar.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið