Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:17 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:17 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:17 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:17 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:17 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:17 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Í nýjum Feyki vikunnar, sem dreift er inn á öll heimili á Blönduósi að þessu sinni, er aðalefnið tileinkað sveitarfélaginu en miklar framkvæmdir hafa farið fram við kirkjugarð bæjarins. Feykir hafði samband við Valdimar Guðmannsson, formann stjórnar kirkjugarðs Blönduóskirkju, og forvitnaðist um framkvæmdir. Annar Blönduósingur var tekinn tali en Brynjar Þór Guðmundsson, stofnaði bakaríið Húnakaffi í sumar og segir hann frá tilurð þess.
Listaverk þeirra Sverris Bergmanns og Pálma Jónssonar sem prýtt hefur vegg Fisk Seafood hvarf er húsnæði fyrirtækisins var málað í sumar. Sigga Garðars skoðar málið með drengjunum síungu.
Áskorendapenninn er að þessu sinni í höndum Péturs Björnssonar á Sauðárkróki en hann segir frá skemmtilegu atviki sem átti sér stað fyrir nokkrum árum í lögreglunni er þrjótur einn var gómaður og fékk að kenna á mjúkum armi réttvísinnar.
Nýliðar sumarsins í golfinu í Skagafirði, Díana og Dúfa, eru kynntar og Sigríður Ólafsdóttir í Víðidalstungu gefur lesendum innsýn í eldamennsku fyrir göngur og réttir. Byggðasafn Skagfirðinga er með fróðlegan pistil um starfsemi sumarsins og þar segir einnig frá sameiginlegu tákni safnanna í Skagafirði, Byggða-, Héraðsbóka-, Héraðsskja- og Listasafni Skagfirðinga.
Stólastúlkur hafa heldur betur gert garðinn frægan með árangri sínum á fótboltavellinum í sumar en eins og allir ættu að vita náðu þær þeim sögulega árangri að komast upp í efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Fyrir liðinu hefur farið hin skelegga varnamaskína Bryndís Rut Haraldsdóttir og er hún tekin tali.
Fastir liðir eru á sínum stað eins og fréttir, leiðari, aflafréttir, íþróttir, afþreying og spurning vikunnar ásamt krossgátu og Rúnar Kristjáns kveður um Covid og jafnvel má telja fleira upp en í lokin má svo fræðast um barnshvarfið í Hornbrekku á Höfðaströnd er Guðmundur Bjarnason týndist, sex ára tökudrengur.
Því má svo bæta við að Feyki er dreift inn á öll heimili á Blönduósi að þessu sinni, að sjálfsögðu í þeirri von að einhverjir láti til leiðast að gera áskrifendur.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |