Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:00 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:00 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:00 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:00 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:00 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:00 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Árleg inflúensubólusetning á HSN Blönduósi og Skagaströnd 2020. Bólusett verður eftirfarandi daga, bóka þarf tíma á heilsugæslu í síma 432-4100.
20. október Aldraðir/Áhættuhópar Blönduós og Skagaströnd
22. október Aldraðir/Áhættuhópar Blönduós
23. október Almennir Blönduós
Vegna covid-19 eru skjólstæðingar sem mæta á heilsugæslur HSN beðnir um að vera með grímu við komu á heilsugæsluna og hafa hana á sér bæði í biðstofu og annarsstaðar innan stofnunarinnar. Gæta skal að því að mæta á þeim tíma sem bókað er og fylgja 2 metra reglunni.
Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetninu:
- Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
- Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
- Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
- Þungaðar konur.
Vakin er athygli á því að ofangreindir áhættuhópar eiga rétt á bóluefninu sér að kostnaðarlausu en greiða þarf komugjald skv. reglugerð nr.225/2018.
Þeir sem eru að velta fyrir sér með bólusetningu gegn lungnabólgu eru beðnir að panta hana um leið og pantað er í inflúensubólusetningu.
Bólusetning gegn inflúensu veitir allt að 60–70% vörn gegn sjúkdómnum. Jafnvel þótt bólusettur einstaklingur fái inflúensu eru allar líkur á því að sjúkdómurinn verði vægari en ef hann væri óbólusettur.
Að gefnu tilefni er minnt á að einstaklinga má bólusetja jafnvel þó inflúensufaraldur sé hafinn því einungis tekur um 1-2 vikur að mynda verndandi mótefni eftir bólusetningu“.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |