Sigraði sinn riðil í Skólahreysti  •   Stefna á hópslysaæfingu í maí  •   Sigríður endurkjörin formaður kjördæmisráðs  •   Háskólinn á Hólum hlýtur viðurkenningu fyrir framsækið og metnaðarfullt háskólastarf  •   Íbúafundur á Skagaströnd  •   Nýr prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi  •   Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra  •   Aðalfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi   •  
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 08:16 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 08:16 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 08:16 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 08:16 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 08:16 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 08:16 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Leita í netfangaskrá
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Fréttir | 21. október 2020 - kl. 12:48
Samkomutakmarkanir vegna COVID næstu vikur
Í gær tóku gildi reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar. Gildistími reglugerðanna er til og með 10. nóvember að undanskildum bráðabirgðaákvæðum um takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu sem gilda til 3. nóvember. Breytingar sem reglugerðirnar fela í sér frá fyrri takmörkunum eru raktar hér að neðan.
Áfram er kveðið á um strangari takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu en gilda á landsvísu. Utan höfuðborgarsvæðisins hefur orðið sú meginbreyting að nándarmörk milli einstaklinga hafa verið aukin úr 1 metra í 2.
Takmarkanir utan höfuðborgarsvæðisins – helstu breytingar:
- Nándarmörk milli einstaklinga eru 2 metrar.
- Skylt er að nota andlitsgrímur þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra nándarmörk, m.a. í verslunum.
- Á viðburðum er einungis heimilt að hafa 20 gesti í hólfi í hverju rými sem skulu sitja í númeruðum sætum sem skráð eru á nafn.
- Íþróttaiðkun sem ekki krefst snertingar, þar sem hægt er að virða 2 metra regluna og 20 manna nálægðarmörk er heimil, jafnt innan- og utandyra.
- Þrátt fyrir 2 metra nálægðartakmörk eru snertingar heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), en virða skal 2 metra regluna í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Þrátt fyrir 20 manna fjöldatakmörk er allt að 50 einstaklingum heimilt að koma saman á æfingum og í keppnum á vegum ÍSÍ.
- Engir áhorfendur mega vera á íþróttaviðburðum, hvorki innan- né utandyra.
- Íþrótta og heilsuræktarstarfsemi: Heimilt er með skilyrðum að standa fyrir og stunda íþrótta- og heilsuræktarstarfsemi ef um er að ræða skipulagða hóptíma þar sem allir þátttakendur eru skráðir og fjöldi að hámarki 20 manns. Við þessar aðstæður er skylt að virða 2 metra regluna, þátttakendur mega ekki skiptast á búnaði meðan á tíma stendur og allur búnaður skal sótthreinsaður á milli tíma. Sameiginleg notkun á búnaði sem er gólf- loft- eða veggfastur, eða stórra tækja, s.s. á heilsuræktarstöðvum, er óheimil.
Takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu – helstu breytingar:
- Allt íþrótta- og tómstundastarf barna á leik- og grunnskólaaldri, þ.m.t. skólasund sem krefst snertingar er óheimilt. Íþrótta- og tómstundastarf sem ekki krefst snertingar er því heimilt. Allt íþrótta- og tómstundastarf sem krefst ekki frekari blöndunar hópa en í skólastarfi er enn fremur heimilt, svo sem í frímínútum eða leikfimitímum í skólum.
- Íþrótta og heilsuræktarstarfsemi: Heimilt er með skilyrðum að standa fyrir og stunda íþrótta- og heilsuræktarstarfsemi ef um er að ræða skipulagða hóptíma þar sem allir þátttakendur eru skráðir og fjöldi að hámarki 20 manns. Við þessar aðstæður er skylt að virða 2 metra regluna, þátttakendur mega ekki skiptast á búnaði meðan á tíma stendur og allur búnaður skal sótthreinsaður á milli tíma. Sameiginleg notkun á búnaði sem er gólf- loft- eða veggfastur, eða stórra tækja, s.s. á heilsuræktarstöðvum, er óheimil.
Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.
Mest lesið
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |