Kristín Ingibjörg. Ljósm: blonduos.is
Kristín Ingibjörg. Ljósm: blonduos.is
Fréttir | 10. nóvember 2020 - kl. 11:55
Kristín Ingibjörg er nýr menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Blönduósbæjar

Kristín Ingibjörg Lárusdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúa Blönduósbæjar. Kristín starfar nú sem launafulltrúi á skrifstofu Blönduósbæjar og mun sinna því starfi þar til nýr launafulltrúi hefur verið ráðinn. Hún mun formlega taka við hinu nýja starfi um næstu áramót, að því er segir í tilkynningu á vef bæjarins.

Blönduósbær ákvað í sumar að auglýsa stöðuna og leggja niður frá sama tíma starf forstöðumanns æskulýðsmiðstöðvar, sem mun falla undir nýja starfið, ásamt þróunarvinnu með starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Skjólsins og einnig áform um að þróað verði á næstu árum nýtt Frístundaheimili Blönduósbæjar.

Þá mun starfið einnig verða tengiliður við Embætti landlæknis og umsjónaraðili með verkefninu „Heilsueflandi samfélag“ sem sótt hefur verið um. Ennfremur mun starfið verða tengiliður sveitarfélagsins við öll félög og samtök sem eru með skipulagða íþrótta- og tómstundastarfsemi í sveitarfélaginu sem og alla menningartengda viðburði sem sveitarfélagið kemur að.

Í tilkynningunni segir að Kristín Ingibjörg hafi yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á öllum þeim þáttum sem starfið nái til og þekki vel til allra innviða í sveitarfélaginu og á starfssvæðinu. Þá hafi hún einnig menntun og reynslu sem nýtist í þessu nýja og fjölbreytta  starfi sem miklar væntingar séu bundnar við.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga