Tilkynningar | 12. nóvember 2020 - kl. 09:26
Jólasjóðurinn minnir á sig
Frá stjórn Jólasjóðsins

Nú fer að líða að jólum og vill Jólasjóðurinn minn á sig. Sjóðurinn hefur fengið styrki frá félagssamtökum, sveitarfélögum og einstaklingum til að aðstoða fjölskyldur og einstaklinga á svæðinu, sem minna mega sín. Þörf fyrir aðstoð á svæðinu hefur aukist frá ári til árs, hefur Félagsþjónustan fært einstaklingum og fjölskyldum inneignarkort sem jólasjóðurinn fjármagnar með styrkjum frá ykkur. Vill sjóðurinn koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem hafa styrkt sjóðinn í gegnum árin.

Bent er á reikningsnúmer Jólasjóðsins: 0307-13-110187, kt. 651114-0470.

Stjórnin.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga