Í Vatnsdal. Ljósm: Höskuldur B. Erlingsson
Í Vatnsdal. Ljósm: Höskuldur B. Erlingsson
Fréttir | 14. nóvember 2020 - kl. 09:32
Kanna hvort þörf sé á almenningssamgöngum á Norðurlandi vestra

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri hafa gert með sér samstarfssamning um vinnu við skoðun á fýsileika þess að koma á fót almenningssamgöngum a vinnusóknarsvæðum á Norðurlandi vestra. Markmiðið með verkefninu er að komast að því hvort þörf sé á almenningssamgöngum í landshlutanum og þá hverjir myndu helst nýta sér þær, milli hvaða staða og hvernig mætti útfæra þær svo þær nýtist sem best.

Verkefnið er framkvæmt með stuðningi úr lið A-10 í byggðaáætlun – Almenningssamgöngur um land allt, en samtökin hlutu styrk til verkefnisins á dögunum. Gert er ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir í mars á næsta ári með fyrirvara um ófyrirsjáanlegar tafir vegna heimsfaraldurs eða annarra óviðráðanlega orsaka.

Sagt er frá þessi á vef SSNV og þar eru íbúar, sem hafa ábendingar varðandi möguleika á almenningssamgöngum á svæðinu hvattir til að senda ábendingar á ssnv@ssnv.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga